Sigtryggur Baldursson

(-)

(2. október 1962) er íslenskur tónlistarmaður, trommuleikari og upphafsmaður hljómsveitarinnar Bogomil Font og Miljónamæringarnir. Sigtryggur var í hljómsveitunum Þey, Kukl og Sykurmolum ásamt því að spila með fleiri hljómsveitum. Hann fluttist búferlum til Madison í Wisconsin fylki Bandaríkjanna árið 1993 og vann þar og í Chicago við upptökustjórn og hljóðfæraleik ásamt því að gera hljóðritanir til notkunar í tölvutónlist (sampling diska) og einnig eigin upptökur (Bogomil Font syngur Kurt Weill-1995 og DIP ásamt Jóhanni Jóhannssyni 1998) Hann fluttist til Íslands aftur árið 2003. Var framkvæmdastjóri Músíktilrauna 2004 og tónlistarstjóri hjá sumaróperunni sumarið 2004. Hann hefur unnið mikið með Emiliönu Torrini frá árinu 1998 ásamt því að vinna tónlist við leikhús og kvikmyndir og heimildarmyndir og leikið inn á fjölda hljómplatna sem trommu- og slagverksleikari. Einnig gefur hann út og kemur fram undir listamannsnafninu Bogomil Font.

Hann vann útvarpsþætti fyrir RÚV um heimstónlist á sumrin 2005 og 2006. Lék með Ragnhildi Gísladóttur og Stomu Yamashta á Heimssýningunni í Japan 2005. Hann hefur setið í stjórn hjá FTT og ÚTÓN frá árinu 2006 ásamt því að sitja í stjórn Tónlistarráðs (sem úthlutar úr tónlistarsjóði Menntamálaráðuneytisins) árið 2011. Hann hefur frá árinu 2011 einnig unnið sjónvarpsþætti um tónlist bæði fyrir ÍNN (Kolgeitin) og RÚV (Hljómskálinn, ásamt Guðmundi Kristinni Jónssyni og Braga Valdimar Skúlasyni).

Hann tók við stöðu sem framkvæmdastjóri Útflutningsskrifstofu íslenskrar tónlistar í febrúar árið 2012.

Read more