MARÍA SKAGAN
María Jónsdóttir Skagan fæddist á Bergþórshvoli í Landeyjum 27. janúar 1926. Hún lést 2. nóvember síðastliðinn. Foreldrar hennar voru hjónin sr. Jón Jónsson Skagan, prestur á Bergþórshvoli f. á Þangskála á Skaga 3. ágúst 1897, d. 4. mars 1989 og Sigríður Jenný Gunnarsdóttir Skagan frá Selnesi á Skaga, f. á Sævarlandi í Laxárdal 21. janúar 1900, d. 19. febrúar 1991. Systir Maríu var Ástríður Jónsdóttir Skagan, f. 13. mars 1933, d. 23. desember 1969. Kjördóttir Jóns og Jennýjar er Sigríður Kristín Lister, f. 17. október 1933, gift Kenneth Lister, f. 30. desember 1925.