Jakob Frímann Magnússon, tónskáld og kvikmyndagerðarmaður. Hann er stofnmeðlimur hljómsveitarinnar Stuðmanna.

Stofnaði Stúdíó Sýrland ásamt Stuðmönnum 1982. Framleiðandi og leikstjóri Brasilíufaranna (RUV) 1981, framleiðandi Með allt á hreinu 1982, framleiðandi Nickel Mountain (HBO) 1983, framleiðandi og leikstjóri Hvítra Máva 1984, framleiðandi Rocking China 1986, Í takt við tímann 2005 auk fjölda heimildarmynda, sjónvarps - og útvarpsþátta. Dómari í Ísland got Talent 2015-2016.

Menningarfulltrúi íslenska sendiráðsins í London 1991-1995 og menningarráðunautur utanríkisráðuneytisins frá 2006. Framkvæmdastjóri miðborgarmála frá 2008 og framkvæmdastjóri Miðborgarinnar okkar frá 2009. Varaþingmaður Samfylkingarinnar 2000-2006 og sat á þingi í skamman tíma 2004. Formaður FTT, Félags tónskálda og textahöfunda frá 2006, formaður STEFs, Sambands tónskálda og textahöfunda frá 2008, formaður SAMTÓNS 2010-2012, stofnaði Secret Solstice ásamt fleirum 2013, formaður stjórnar ÚTÓNs frá 2015, formaður stjórnar Iceland Airwaves frá 2015. Í stjórn BÍL, Bandalags íslenskra listamanna frá 2006.

Read more