Guðrún Böðvarsdóttir

(1902-1936)

Guðrún Böðvarsdóttir (Dúna Böðvars) var dóttir séra Böðvars Bjarnasonar, prests á Hrafnseyri við Arnarfjörð, og fyrri konu hans, Ragnhildar Teitsdóttur frá Ísafirði. Þegar foreldrar hennar skildu flutti Guðrún með móður sinni til Reykjavíkur. Tvo bræður átti hún, þá Ágúst og Bjarna. Allt var þetta mikið tónlistarfólk og er Bjarni þeirra þekktastur (Bjarni Bö). Þær mæðgur voru mjög samrýndar. Guðrún veiktist af berklum og milli þess sem hún var á Vífilsstöðum dvaldi hún heima hjá móður sinni og dó þar rúmlega þrítug að aldri.

Read more